Fjórir HFR-ingar eru í landsliðshópi Íslands sem fer á Smáþjóðaleikana í Andorra í ár. Þeir eru:
Kristinn Jónsson,
Davíð Jónsson,
Breki Gunnarsson og
Daníel Freyr Steinarsson
Þeir munu allir keppa í götuhjólreiðum en þar að auki mun Davíð einnig keppa í tímatöku og þeir Kristinn og Breki í ólympískum fjallahjólreiðum.
Þeir hafa allir verið í HFR-Alvotech liðinu síðustu ár og hafa náð miklum árangri bæði hér heima og erlendis.