Hér með er boðað til aðalfundar HFR þann 8. apríl 2025, kl. 20:00 með tveggja vikna fyrirvara samkvæmt reglum félagsins. Fundurinn er haldinn í húsakynnum Stangaveiðifélags Hafnarfjarðar að Flatahrauni 29 í Hafnarfirði.
Kosið er til formanns og 6 manna stjórnar á aðalfundi félagsins og leitum við til ykkar kæru félagsmenn að bjóða ykkur fram og vera með okkur í þessu skemmtilega starfi sem stjórnin sinnir.
Framboð til stjórnar berast á aðalfundi en þegar hafa eftirtaldir aðilar boðið sig fram til áframhaldandi setu: Björgvin Jónsson, Breki Gunnarsson og Ástríður Geirsdóttir.
Þeir sem víkja úr stjórn eftir þetta tímabil eru Erla Björk Sveinbjörnsdóttir, Sædís Ólafsdóttir, Sæmundur Guðmundsson, Valgeir Smári Óskarsson og Þórdís Einarsdóttir. Við þökkum þeim kærlega fyrir vel unnin störf á undanförnum árum.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
Kosinn fundarstjóri og fundarritari
Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári.
Lagðir fram endurskoðaðir reikningar.
Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun næsta árs.
Lagabreytingar, ef tillögur liggja fyrir sbr. 12. grein.
Kosning í stjórn félagsins;
kosinn formaður,
kosnir 6 einstaklingar í stjórn,
kosnir 2 varamenn og atkvæði greidd um þá,
kosnir 2 endurskoðendur,
kosnir formenn nefnda,
Mótanefnd
Fjáröflunarnefnd,
Almenningshjólreiðar,
Skýrslur og tillögur fráfarandi nefnda
Önnur mál.
Á aðalfundi ræður meirihluti atkvæða úrslitum allra mála, sbr. þó 12. grein. Kosning skal vera skrifleg nema aðeins komi fram ein uppástunga til stjórnarstarfa, þá telst sá sem tilnefndur er, sjálfkjörinn. Formaður nefndar velur með sér 2-4 einstaklinga í nefndina. Stjórnarmenn eru hlutgengir í nefndir. Stjórn gegnir hlutverki nefnda ef ekki fæst fólk til að gegna störfum þeirra.