HFR  Æfingar & mót  Korkur  Sölutorg  Blue Lagoon challenge
Fréttir | Um félagið | Stjórnin | Reglur | Skráning í HFR | Úrslit

 :: Úrslit sumarið 2000

Fjallahjól | Brun | Götuhjól
Götuhjól

Kambakeppni 8,9 km. Tímakeppni

Einar Jóhannsson vann Kambakeppnina sem fram fór á sunnudagsmorgunninn 3.9   austan 8 m/s. Hann bar höfuð og herðar yfir aðra keppendur og hjólaði af miklu öryggi upp Kambana og náði einum af sínum bestu tímum á þessari leið, en hjólreiðamenn hafa haft það fyrir sið að keppa upp kambana í nærri tíu ár. Metið á þessari leið, frá hringtorgi við Hveragerði, upp að sæluhúsinu á Hellisheiði, er 18:29 mín. Það setti Einar sjálfur í strekkingsvindi af austan fyrir nokkrum árum. Kambakeppnin er tímakeppni, þannig að keppendur eru ræstir einn og einn í einu, með mínútu millibili. Nokkra athygli vakti hversu góðum tíma Skúli Magnússon náði en hann var á tímanum 19:40 í öðru sæti sem verður að teljast hans besti árangur til þessa.


Úrslit:
1. Einar Jóhannsson 18:37,71 mín
2. Skúli Magnússon 19:40,01 mín
3. Haukur M Sveinsson 19:50,85 mín
4. Emil Þ Guðmundsson 20:50,97 mín
5. Gunnlaugur Jónasson 21:00,19 mín
6. Bjarni Helgason 25:17,00 mín

Íslandsmótið í tímakeppni

Einar Jóhansson varð íslandsmeistari í tímakeppni á götuhjólum nú á sunnudag. Keppnin fór fram í Ölfusinu í voru hjólaðir 22,6 km blíðskaparveðri. Einar kom í mark á tímanum 32:49,50 sem samsvarar 41,3 km/klst sem er mesti hraði sem náðst hefur í tímakeppni hérlendis. Núverandi Íslandsmeistari Gunnlaugur Jónasson varð að láta sér lynda annað sætið en hann hjólaði á 40,3 km hraða á klst. Nýlaga hefur verið lagt bundið slitlag á hluta leiðarinnar sem gerði vegin tiltölulega ósléttan og hefðu tíminn vafalaust orðið ennþá betri ef undirlagið hefði verið slétt.


Úrslit
1. Einar Jóhannsson 32:49,5
2. Gunnlaugur Jónasson 33,40,0
3. Haukur M Sveinsson 34:20,6
4. Emil Guðmundsson 36:22,9
5. Bjarni Helgason 41:27,0
Bjarki Bjarnason hætti

Íslandsmótið í götuhjólreiðum

Einar Jóhansson varð íslandsmeistari á götuhjólum þriðja árið í röð nú á sunnudag á Þingvöllum. Er þetta í áttunda sinn sem Einar nælir sér í íslandsmeistaratitilinn á götuhjólum. Hjólaðir voru fimm hringir í þjóðgarðinum á Þingvöllum samtals um 85 km. Voru nokkur átök þegar Einar reyndi að slíta sig frá öðrum keppendum, en það tókst ekki fyrr en á síðasta hring þegar hann og Guðmundur hjóluðu frá öllum í brekkunum við Gjábakka. Einar reyndist sprettharðari í endaspretti og kom nokkrum metrum á undan Guðmundi í mark. 
Í unglingaflokki sigraði Haukur M. Sveinsson með miklum yfirburðum og varð fjórði í fullorðinsflokki.


Úrslit
1. Einar Jóhannsson 2,25:18
2. Guðmundur Guðmundsson 2,25:19
3. Gunnlaugur Jónasson 2,26:31
4. Kristinn Hjaltalín 3,02:04

Unglingaflokkur, 5 hringir
1. Haukur M Sveinsson 2,28:41
Emil Guðmundsson hætti
Bjarki Bjarnason hætti
Jón Karl Sigurðsson hætti

Piltaflokkur 13-14 ára, 3 hringir
1. Sigurður Guðlaugsson 1,46:13
2. Daníel Friðriksson 1,52:08

Tímamótið, 5. bikar 15.-16.07.99

Einar Jóhannsson sigraði í Tímamóti Hjólreiðafélags Reykjavíkur sem fram fór nú um helgina á götuhjólum. Einar er nýkominn frá Frakklandi þar sem hann ásamt fleirum tók þátt í keppninni “Le etapp du Tour” með mjög góðum árangri. Hjólaðar voru 3 áfangar sem reyna mismunandi á þolrif keppanda og fór sá fyrsti fram á laugardagsmorguninn á Þingvöllum. Voru farnir 3 hringir í þjóðgarðinum samtals 51 km. en þessi braut er talin henta “spretturunum” eða þeim hjólreiðamönnum sem eru góðir á endasprettinum. Eftir nokkra baráttu komu allir keppendur saman að marki en þá reyndist Einar sterkastur í sprettinum en Guðmundur Guðmundsson, nýbakaður íslandsmeistari í fjallahjólreiðum, varð annar, tveim sekúndum á eftir Einari og Gunnlaugur Jónasson þriðji, 3 sek. þar á eftir.
Annar áfangi fór fram á sunnudagsmorgunn og var hjólað frá Grafarholtinu yfir Mosfellsheiði, niður Grafninginn og endað í Henglinum fyrir ofan Nesjavelli. Þessi braut er talin henta léttari “brekku-sérfræðingum” en Einar Jóhannsson sýndi hversu fjölhæfur hjólreiðamaður hann er og var fyrstur á toppinn þó aðeins 7 sek. á undan Guðmundi en Gunnlaugur var nokkru aftar. Styrmir G. Ólafsson sem er sá hjólreiðamaður okkar sem er hvað léttastur á sér, varð að hætta keppni eftir að stýrið losnaði og var hann heppinn að ná að stöðva áður en illa fór.
Fyrir síðasta áfangann tímakeppnina hafði Einar 9 sekúndna forustu á Guðmund og var ljóst að þeir einir áttu möguleika á sigri. Voru hjólaðir 9 km. með einstaklings skarti á Krísuvíkurvegi sunnan við Hafnarfjörð síðdegis á sunnudag. Einar sem er okkar helsti sérfræðingur í tímakeppni innsiglaði sigurinn á sannfærandi hátt þegar hann sigraði rúmlega hálfri mínútu á undan Guðmundi og var því samtals 41 sekúndu á undan í heildina.
Í unglingaflokki sigraði Haukur M. Sveinsson á sannfærandi hátt en hann vann sigur í öllum áföngum og varð þriðji í heildina. 
Í liðakeppninni var það lið hinna ungu, þ.e. þeir Guðmundur, Haukur og Emil sem báru sigur úr bítum með glæsibrag.


Úrslit:
Þingvellir Nesjavellir Krísuv.leið samtals:
1. Einar Jóhannsson 1:33:37 1:29:46 25:14 3:28:37
2. Guðmundur Guðm.s. 1:33:39 1:29:53 25:46 3:29:18
3. Gunnlaugur Jónasson 1:33:42 1:37:25 26:40 3:37:47
Styrmir G. Ólafsson Hætti
Unglingaflokkur
1. Haukur M. Sveinsson 1:33:41 1:35:13 27:24 3:36:18
2. Emil Þ. Guðmundsson 1:34:16 1:57:39 29:04 4:00:59
Sigurður Guðlaugsson 1:59:15 Hætti

Hvalfjarðarkeppnin í götuhjólreiðum 25.07.00

Einar Jóhannsson sigraði í Hvalfjarðarkeppninni sem fram fór á sunnudag. Mesta athygli vakti þó hversu vel Haukur M. Sveinson hjólaði í flokki 16 – 18 ára. Hann var eini keppandinn sem náði að fylgja Einari alla leið í mark en Einar var þó sterkari á endasprettinum. Hjólað var inn Hvalfjörð og að Olíustöðinni, snúið við og sama leið hjóluð til baka, í allt 73 km. Nokkur hópur hjólreiðamanna hóf keppni en þeir helltust einn af öðrum úr lestinni enda var hraðinn um eða yfir 35 km á klst. Haukur hefur haft talsverða yfirburði í sínum flokki í ár en sýndi nú fyrst hvers hann er megnugur og virðist sem við höfum eignast einn geysisterkan hjólreiðamanninn enn.


Úrslit:
1. Einar Jóhannsson 2,04:53
2. Styrmi G. Ólafsson 2,06:41
3. Guðmundur Guðmundsson 2,11:37
4. Gunnlaugur Jónasson 2,11:57
5. Skúli Magnússon 2,18:33
6. Róbert Pétursson 2,19:44
Unglingaflokkur 16-18 ára
1. Haukur M Sveinsson 2,04:53
2. Bjarki Bjarnason 2,19:50
Emil Þ. Guðmundsson Hætti
Piltaflokkurflokkur 13-15 ára
1. Sigurður Guðlaugsson 57:27
2. Daníel Friðriksson 1,00:06

Hveradalakeppnin í götuhjólreiðum 04.06.00

4. júní fór fram Hveradalakeppnin í hjólreiðum, sem hin þrautreynda hjólkempa Einar Jóhannsson vann eftir mikinn endasprett. Var hjólað frá Reykjavík, yfir Hellisheiði til Hveragerðis og aftur upp Kambana og endað við Hveradali. Þetta reyndi mjög á þolrif keppenda enda hjólað tvívegis upp á Hellisheiði í strekkingsvindi á sunnudag. Þrír keppendur, þeir Einar, Styrmir og Guðmundur reyndust sterkastir þegar lagt var í Kambana. Reyndi Einar hvað eftir annað að rífa sig lausan frá hinum, það tókst ekki, en í staðinn vann hann endasprettinn, naumlega þó.
Í unglingaflokki sigraði Haukur M. Sveinsson með miklum yfirburðum.


Úrslit:

1.                Einar Jóhannsson                          1,41:56
2.                Styrmi G. Ólafsson                        sami tími
3.                Guðmundur Guðmundsson            sami tími
4.                Gunnlaugur Jónasson                    1,42:51
5.                Skúli Magnússon                          1,42:55

Unglingaflokkur 16,8 km.

1.                Haukur M Sveinsson                    1,15:07
2.                Emil Þ. Guðmundsson                  1,16:19
3.                Bjarki Bjarnason                          1,24:02
4.                Daníel Friðriksson                        1,35:07

Hálsakeppnin í hjólreiðum 22.05.00

22. maí fór svo fram svokölluð Höfðakeppni í hjólreiðum. Hjólaður voru 20 hringir á braut sem afmarkast af Grjóthálsi og Draghálsi á sunnudagsmorgunn. Keppni var mjög jöfn og spennandi en nokkrir keppendur duttu í bleytunni og urðu að hætta.
Að þessu sinni sigraði Gunnlaugur Jónasson eftir harða baráttu við hinn unga Guðmund Guðmundsson og Pál Elísson en Guðmundur var einmitt einn þeirra sem féll úr keppni þegar aðeins þrír hringir voru eftir.
Í unglingaflokki sigraði Haukur M. Sveinsson með miklum yfirburðum.


Úrslit:

1.            Gunnlaugur Jónasson                            50:53
2.            Páll Elísson                                           50:55
3.            Skúli Magnússon                                  51:54
4             Róbert Pétursson                                  54:45
               Jóhann Leósson                                    hætti
               Guðmundur Guðmundsson                    hætti
               Styrmir G Ólafsson                               hætti

Unglingaflokkur 16,8 km.

1.            Haukur M Sveinsson                            25:17
2.            Emil Þ. Guðmundsson                         26:10
3.            Bjarki Bjarnason                                 29:45
4.            Daníel Friðriksson                                31:40
               Sigurður Guðlaugsson                          hætti

 

Tímakeppni í hjólreiðum Krísuvíkurvegi 07.05.00

7. maí fór svo fram svokölluð tímakeppni á Krísuvíkurvegi þar sem hjólaðir voru 18,6 km. Tímakeppni fer þannig fram að keppendur eru ræstir einn og einn í einu og tíminn tekinn á hverjum fyrir sig. Mættu 13 keppendur með liggistýri og annan sérbúnað til að minnka vindmótstöðu hjólanna og auka hraðann. Brautin sem hér um ræðir er nokkuð á brattan eða hækkar um 70 m áður en snúið er við og sama leið hjóluð til baka. Náðu menn allt að 60 km. hraða á bakaleiðinni enda um fimm vindstig í bakið og undan hallanum. Í þetta sinn var það hinn efnilegi Guðmundur Guðmundsson sem mætti einbeittur til leiks og náði mestum hraða en meðalhraði hans reyndist 35.33 km/klst 


Úrslit:

1.            Guðmundur Guðmundsson                    31:35
2.            Gunnlaugur Jónasson                             32:05
3.            Styrmir G. Ólafsson                               32:54
4.            Skúli Magnússon                                   33:24
5.            Róbert            Pétursson                        36:06
6.            Jóhann Leóson                                      36:09
7.            Remi Spilliaert                                       40:14
8.            Bjarni Helgason                                     43:14

Unglingaflokkur:

1.            Haukur M. Sveinsson                            34:22
2.            Emil Þ. Guðmundsson                           35:37
3.            Bjarki Bjarnason                                   36:12
4             Daníel  Friðriksson                                39:33

5.            Sigurður Guðlaugsson                           40:25

 

Til Baka


Fjallahjól

Rauðavatn 2. sept.

Haukur M. Sveinson sigraði síðustu bikarkeppni ársins á fjallahjólum sem fram fór við Rauðavatn sunnudaginn 2. Sept. Haukur háði mikla baráttu við Emil Guðmundsson sem oftast hefur haft betur í sumar og leiddi keppnina lengst af. Haukur reyndist sterkari á síðasta hring þegar hann stakk hreinlega af og hjólaði einn í mark. Það er þó Steinar Þorbjörnsson sem sigrar í bikarkeppni HFR þetta árið, en hann hefur verið mjög sterkur í sumar. Í flokki garpa kom Bjarni Helgason fyrstur í mark en nýliðinn Ólafur G. Sigurjónsson í flokki 13 –15 ára. Hannes Guðlaugsson og Einar L Óskarsson sigruðu í piltaflokkum en Bryndís Þorsteinsdóttir í stúlknaflokki. Því miður mættu engar konur til leiks að þessu sinni.


Úrslit:
A- flokkur og unglingar 16-18 ára
1. Haukur Már Sveinsson                 1:16.45
2. Emil Þ. Guðmundsson                  1:18.54
3. Bjarki Bjarnason                          1:26.00

Piltar 13-15 ára
1. Ólafur Geir Sigurjónss.                   41.31
2. Arnþór Ingi Andrésson                   42.36
3. Hlynur Þorsteinsson                       43.50

Drengir 11-12 ára
1. Hannes B. Guðlaugsson                34.09
2. Guðjón Ólafsson                          34.42
3. Aron Sigurðsson                          35.52
4. Eyþór Þorsteinsson                      36.54
5. Gunnar Magnússon                      38.39

Drengir 8-10 ára
1. Einar Logi Óskarsson                  20.10
2. Óskar Einarsson                          21.11
3. Kristján V. Kristmannss.             21.51
4. Eyþór Snæland                           22.31
5. Ingvar Páll Bjarnason                  23.07
6. Kári Gunnlaugsson                      29.05

Stúlkur 7-12 ára
1. Bryndís Þorsteinsdóttir                21.12
2. Sigrún Rós Dofradóttir                29.27
3. Sóley Bjarnadóttir                       30.57

Garpar 34+
1. Bjarni Helgason                         57.04
2. Þorsteinn Helgason                 1:09.04

 

Fjallahjólakeppni við Reynisvatn 31.08.00

31. ágúst fór fram fram fjallahjólakeppni við Reynisvatn sem Guðmundur Guðmundsson vann. Hann sigraði þar með bikarmót HFR enda hefur hann unnið allar 6 keppnirnar í mótaröð sumarsins. Mjög góð þátttaka var að þessu sinni, bæði í yngri flokkum jafnt sem eldri. Var hjólað á hring í nágreni Reynisvatns, bæði vegi og vegleysur og þurftu menn meðal annars að hjóla yfir forarpytti og grjótmela.
Að þessu sinni var keppt í flokki “eldri barna” eða garpa, það er þeirra sem eru 35 ára og eldri. Þótti það takast mjög vel á sá flokkur eflaust eftir að verða vinsæll.
Í yngri flokkum vakti það athygli hversu vel Sigurður Guðlaugsson hjólaði, en það dugði honum ekki til sigurs í bikarmóti 13-15 ára, það vann Daníel Friðriksson.
Hlynur Þorsteinsson vann sína fjórðu keppni í yngsta flokknum með yfirburðum og tók bikarinn í þeim flokki.


Úrslit:
A- flokkur 5 hringir
1.            Guðmundur Guðmundsson                        51:25
2.            Hákon Sigurðsson                                    56:30
3.            Róbert Pétursson                                    58:48
4.            Gunnlaugur Jónasson                                 1:00:19

Garpar 35+, 3 hringir
1.         Bjarni Helgason                                    43:54
2.            Þorsteinn Helgason                                    55:25

Unglingaflokkur 16-18 ára, 5 hringir
1.            Bjarki Bjarnason                                    57:25
2.            Haukur M. Sveinsson                                    58:08

Piltaflokkur 13-15 ára, 3 hringir
1.         Sigurður Guðlaugsson                                    37:55
2.         Daníel Friðriksson                                    40:55
3.         Arnþór Ingi Andrésson                        53:60

Drengjaflokkur 9-12 ára, 3 hringir            
1.             Hlynur Þorsteinsson                                    37:10           
2.            Eyþór Þorsteinsson                                    41:27
3.            Kristján Oddur Guðmundsson                        41:51
4.            Guðjón Ólafsson                                    48:47

Stúlknaflokkur 13-15 ára, 3 hringir            
1.             Petra Halldórsdóttir                                    37:10           

Skagfirska 8-n 2000
12. - 13. ágúst 2000
Karlar:
Röð  Nafn: K.nr.   T. 1.dagur T. 2.dagur Tími alls
1. Guðmundur Guðmundsson 306   2:10.06,5 3:13.09,6 5:23.16,1
2. Emil Þór Guðmundsson 303   2:10.06,6 3:16.51,7 5:26.58,3
3. Haukur Sveinsson 310   2:10.51,3 3:27.40,7 5:38.32,0
4. Pétur Kolbeinsson 315   2:14.45,9 3:33.45,5 5:48.31,4
5. Bjarki Bjarnason 321   2:14.40,9 3:38.01,0 5:52.41,9
6. Jóhann Leósson 312   2:14.38,2 3:43.02,2 5:57.40,2
7. Róbert Pétursson 317   2:16.00,2 3:44.25,7 6:00.25,9
8. Baldur Ingvarsson 302   2:36.04,4 3:41.52,9 6:17.57,3
9. Kristinn Hjaltalín 313   2:30.03,0 4:04.18,8 6:34.21,8
10. Helgi Jóhannesson 311   2:47.31,1 3:58.26,1 6:45.57,2
11. Þorsteinn Broddason 319   2:52.30,1 4:34.05,5 7:26.35,6
12. Gunnar Magnússon 308   2:50.54,1 4:42.53,4 7:33.47,5
13. Sveinn Finnbogason 318   2:50.21,4 5:25.51,4 8:16.12,8
14. Halldór Hreinsson 309   2:59.04,1 5:25.51,2 8:24.55,3
# Haraldur Vilhjálmsson 320   2:21.28,5 # #
# Gísli Guðmundsson 304   2:48.20,2 # #
# Bjarni Helgason 320   # 4:48.47,7 #
Konur:
1. Guðbjörg Halldórsdóttir 305   2:45.58,4 4:22.27,7 7:08.26,1
2. Alda Jónsdóttir 301   3:02.36,9 4:59.50,4 8:02.27,3
3. Kristjana Erlingsdóttir 314   3:02.58,8 5:44.17,5 8:47.16,3

 

Tröllakeppninn í Mosfellsbæ, Fjallahjólreiðar 23.07.00

Röð

Nafn

Flokkur

Tími

1

Guðmundur Guðmundsson

karla

1.42,19

2

Hákon Sigurðsson

karla

1.53,57

3

Jóhann Leósson

karla

1.54,33

4

Gunnlaugur Jónasson

karla

1.56,05

5

Gunnar Grétarsson

karla

1.58,28

6

Róbert Pétursson

karla

1.58,29

7

Kristinn Hjaltalín

karla

2.06,45

8

Óttar Arnalds

karla

2.17,38

9

Jónas Þórðarson

karla

2.19,19

10

Helgi Valsson

karla

2.41,38

11

Pétur Stefánsson

karla

2.43,07

 

 

 

 

1

Kristjana Erlingsdóttir

kvenna

2.23,56

Íslandsmeistaramót í Fjallahjólreiðum 09.07.00

Guðmundur Guðmundsson sigraði á íslandsmeistaramóti í fjallahjólreiðum sem fram fór við Rauðavatn þann 09.07. Guðmundur sýndi að hann er okkar besti keppandi í fjallahjólreiðum. Hjólað var á stígum við Rauðavatn í blíðskaparveðri, hringurinn sem var hjólaður í þetta sinn var mjög krefjadi og reyndi mikið á tækni og kraft keppenda.Það var gaman að sjá hversu vel yngri keppendur hjóluðu þessa krefjandi braut.


Úrslit:
Karlaflokkur 20 hringir
1.            Guðmundur Guðmundsson                        1:25.13
2.            Hákon Hrafn Sigurðsson                           1:35.17
Unglingaflokkur 16-18 ára, 20 hringir
1.            Emil Þór Guðmundsson                            1:27:58
            Haukur Már Sveinsson                                   Hætti
Piltaflokkur 13-15 ára, 15 hringir
1.        
Daníel Friðriksson                                            1:27:19 
2.        
Sigurður Guðlaugsson                                       1:47:28
3.        
Arnþór Andrésson                                           1:59.50
Drengjaflokkur 9-12 ára, 5 hringur            
1.             Hlynur Þorsteinsson                                   52:30
2:            Kristján Oddur Guðmundsson                     55:19
3.            Eyþór Þorsteinsson                                   1:01:43
4.            Guðjón Ólafsson                                       1:19:57

Fjallahjólakeppni við Reynisvatn 15.06.00

Guðmundur Guðmundsson sigraði í fjallahjólakeppni sem fram fór við Reynisvatn þann 15.06. Hann hafði mikla yfirburði og hefur nú tekið afgerandi forustu í bikarmótinu sem þessi keppni var liður í. Hjólað var um umhverfi Reynisvatns og var gaman að sjá hversu góð þátttaka var í yngri flokkunum en því miður mættu engir kvennmenn til leiks að þessu sinni.


Úrslit:
Karlaflokkur 3 hringir

1.          Guðmundur Guðmundsson                        1:47:17
2.           Róbert Pétursson                                     1:57:14
3.     
        Jón Jónsson                                             1:58:25

Unglingaflokkur 16-18 ára, 3 hringir

1.            Emil Þór Guðmundsson                          1:54:10 
2.             Bjarki Bjarnason                                    2:04:32
3.            Haukur Már Sveinsson                        

Piltaflokkur 13-15 ára, 2 hringir

1.         Daníel Friðriksson                                          1:40:10 
2.         Sigurður Guðlaugsson                                     1:46:02

Drengjaflokkur 9-12 ára, 1 hringur         

1.             Hlynur Þorsteinsson                               44:58
2:            Kristján Oddur Guðmundsson                 51:19
3.            Eyþór Þorsteinsson                                 53:35
4.            Eiríkur Björnsson                                    53:47
5.            Guðjón Ólafsson                                  1:15:37

Bláalónskeppnin 10.06.00

Einar Jóhannsson og Guðbjörg Halldórsdóttir unnu karla og kvennaflokk í Blálónskeppninni í ár á besta tíma sem náðst hefur á þessari leið. Hjólað var úr Hafnarfirði, suður Krísuvíkurveg, Djúpavatnsleið farinn vestur Reykjanes, í gegnum Grindavík og komið að Bláalóninu úr suðri. Í allt um 60 km, þar af um 43 km á mjög slæmum vegum en 17 á malbiki. Aðstæður voru með betra móti í ár, enda norðaustanátt og vindur því í bakið. Emil Þór Guðmundsson, Einar og Guðmundur Guðmundsson náðu strax góðu forskoti á aðra keppendur en Emil varð fyrir því óláni að sprengja dekk og varð að hætta. Guðmundur seig frammúr Einari í brekkunum á Djúpavatnsleið og hafði náð allt að þriggja mínútna forskoti eftir 40 km. En Einar reyndist seigari á úthaldinu og saxaði jafnt og þétt á forskotið. Hann varð þó fyrir því skakkafalli að keðjan fór af við Ísólfsskála en hann lét það ekki á sig fá og náði Guðmundi þegar aðeins þrír kílómetrar voru eftir í mark
Í kvennaflokki sigraði Guðbjörg Halldórsdóttir með yfirburðum og sýndi enn einusinni að hún er langsterkasta hjólreiðakona okkar um þessar mundir.
Aldrei hafa jafn margir keppendur mætt til leiks og allir enduðu þeir í Bláalóninu, sem gaf verðlaunin og bauð öllum ofaní!

Úrslit:
Karlaflokkur

1.           Einar Jóhannsson                                    1:53:22
2.           Guðmundur Guðmundsson                      1:54:54
3.                
Róbert Pétursson                                    2:07:25
4.         
       Jóhann Leósson                                      2:07:26
5.         
       Bjarki Bjarnason                                     2:08:46
6.         
       Remi Spilliaert                                         2:11:54
7.         
       Pétur Kolbeinsson                                   2:12:09
8.         
       Erwin H. K. Brynjólfsson                         2:14:34
9.            
     Óttar Arnalds                                           2:22:25
10.        
     Hörður Sæmundsson                                2:26:11
11.             Kristinn Hjaltalín                                       2:36:20
12.       
     Hreinn Óskarsson                                     2:38:27
13.-14.  Sigurður R. Guðlaugsson                           2:38:48
13.-14.  Daníel Friðriksson                                     sami tími
15.         Skúli Magnússon                                      2:41:54
16.         Haukur Arason                                         2:41:55
17.         Haukur Þorsteinsson                                 2:46:48

Kvennaflokkur

1.            Guðbjörg Halldórsdóttir                           2:32:59
2.            Alda Jónsdóttir                                        2:48:16
3.            Theódóra B. Geirsdóttir                           3:02:00

Fjallahjólakeppni við Rauðavatn 25.05.00

25. maí fór svo fram fjallahjólakeppni við Rauðavatn á vegum Hjólreiðafélags Reykjavíkur. Hinn ungi og efnilegi Guðmundur Guðmundsson stakk alla aðra keppendur af og sigraði í A-flokki með miklum yfirburðum. Brautin var nokkuð löng og erfið og reyndi mjög á úthaldið. Góð þátttaka var að þessu sinni, sérstaklega í yngri flokkunum og áhorfendur og keppendur fengu grillpylsur í boði Hjólreiðafélagsins!

Úrslit:

A- flokkur 10 hringir

1.            Guðmundur Guðmundsson                        1:55:40
2.            Óttar Arnalds                                            2:24:33

Kvennaflokkur 5 hringir

1.            Guðbjörg Halldórsdóttir                                44:33
               Hildur  D. Guðmundsdóttir hætti 

Unglingaflokkur 16-18 ára, 8 hringir

1.            Emil Þór Guðmundsson                             1:13:05
2.            Haukur Már Sveinsson                              1:15:32
3.            Bjarki Bjarnason                                       1:30:42

Drengjaflokkur 9-12 ára, 2 hringir

1.            Kristján Oddur Guðmundsson                  27:10
2:            Hlynur Þorsteinsson                                  28:30
3.            Eiríkur Björnsson                                      32:56
4.            Eyþór Þorsteinsson                                   33:30
5.            Hafliði Pétursson                                       46:07

Fjallahjólakeppni í Öskjuhlíð 11.05.00

11. maí fór svo fram fjallahjólakeppni í Öskjuhlíð. Hinn efnilegi Guðmundur Guðmundsson stakk alla aðra keppendur af og sigraði í A-flokki með miklum yfirburðum. Brautin sem farinn var reyndi mjög á þolrif keppanda bæði lagni og úthald enda helltust nokkrir úr lestinni. A-flokkur hjólaði 20 hringi á braut sem lögð var um stígana í skóginum í Öskjuhlíð en aðrir styttra. Einn keppandi varð fyrir því óláni að nefbrotna en hann mun vera á góðri bataleið. 

Úrslit:

A- flokkur 20 hringir
1.     Guðmundur Guðmundsson                        33:40

2.     Gunnlaugur Jónasson                                 38:47

3.     Róbert Pétursson                                       39:47

4.     Jóhann Leósson                                         40:05
         Steinar Þorbjörnsson, hætt eftir 15 hringi
         Óttar Arnaldsson, hætti eftir 7 hringi

Unglingaflokkur 16-18 ára, 15 hringir

1.    Emil Þór Björnsson                                        26:48
2.    Haukur M. Sveinsson                                     28:26

Piltaflokkur 13-15 ára, 10 hringir

1.         Daníel Friðriksson                                          20:29
2.    Sigurður Guðlaugsson                                     24:07

Drengjaflokkur 10-12 ára, 2 hringir           

1.     Kristján Oddur Guðmundsson                         6:34
Til Baka


Brun

 

Til Baka



© hfr 2012 [ hafðu samband ]
 
 
 
Bikecompany Reykjavik Iceland. Bike tours and rentals
 
Útilíf hjólum í vinnuna