|
Flokkaskipting |
Keppnisleglur ÍSÍ |
Reglur HFR | Keppnisreglur fyrir brun.
Flokkaskipting gefin út af Hjólreiðanefnd ÍSÍ með
keppnisdagskráinni 2004
Flokkar: U1=9-10 ára bæði kyn
U2=11-12 ára bæði kyn
U3=13-15 ára bæði kyn
U4=16-18 ára bæði kyn
K=Kvennaflokkur
O=Opinn flokkur karla
H=Heiðursmenn, hjólar styttri leið
H30=30–39 ára
H40=40–49 ára o.s.frv.
Þrjár keppnir af fjórum gilda til sigurs í bikarmóti. Í H-flokkum er
einungis verðlaunað fyrir
keppnina sem slíka en ekki er keppt til heildarsigurs.
Flokkar H-30, H-40, U4 og Opinnflokkur eru ræstir saman, og eins H,
H-50, U3 og kvennaflokkur.
Krýndur er Íslandsmeistari í Opnum flokki kvenna og karla en meistarar í
öðrum flokkum.
Amk. þrír keppendur þurfa vera í hverjum flokki til að keppni í honum sé
opinber.
Keppandi sem hefur unnið keppni í flokki heiðursmanna flyst sjálfkrafa í
einn af hinum flokkunum, en getur með sérstöku leyfi keppnistjóra keppt
áfram í flokki heiðursmanna.
Skráningu og skoðun öryggisatriða hjóla lýkur 1/2 klst. fyrir keppni.
Á götuhjólum er að jafnaði einungis keppt í flokkum U3 og eldri þ.e. 13
ára og eldri.
KEPPNISREGLUR HJÓLREIÐANEFNDAR ÍSÍ–HJÓL
Reglur þessar, ásamt
reglum Alþjóða Hjólreiðasambandsins UCI, gilda í hjólreiðakeppnum á
Íslandi. Varðandi þau atriði sem reglurnar fjalla ekki um skulu reglur
UCI gilda.
1 FLOKKASKIPTING
Flokkaskipting í bikarkeppnum og
Íslandsmótum er eftirfarandi (karla og kvenna)
Fjallahjól:
Götuhjól:
|
9-10 ára |
|
|
11-12 ára |
|
|
13-15 ára |
13-15 ára |
|
16-18 ára |
16-18 ára |
|
Öldungaflokkur 34 ára og
eldri |
Öldungaflokkur 34 ára og
eldri |
|
Meistaraflokkur 16 ára og
eldri
|
Meistaraflokkur 16 ára og
eldri
|
|
|
|
Flokkur 16-18 ára og öldungaflokkur eru sérflokkar en
taka einnig þátt í keppni Meistaraflokks.
Aldursflokkurinn er ákveðinn m.t.t. fæðingarárs.
Heimilt er að keppa í næsta flokki fyrir ofan, þ.e. eldri flokki, að
gefnu samþykki keppnisstjóra.
2
BIKARKEPPNI
Keppt
er í bikarkeppni í götuhjólreiðum og í víðavangskeppni fjallahjólreiða.
Í Meistaraflokki er
keppt um bikarmeistaratitil. Í öðrum flokkum er keppt til meistara.
Ef
fáir keppendur eru í hverjum flokki má ræsa flokka saman.
Hjólreiðanefnd ákveður á hverju ári hvaða keppnir mynda bikarmót og úr
hve mörgum keppendur taka stig. Keppendur taka ekki með
sér stig á milli flokka. Stigagjöf er eftirfarandi:
1. Sæti: 8 stig
5. Sæti: 3 stig
2. Sæti: 6 stig
6. Sæti: 2 stig
3. Sæti: 5 stig
7. Sæti: 1 stig
4. Sæti: 4 stig
8. Sæti og neðar: 0 stig
Ef
keppendur eru jafnir að stigum telst sá ofar (sigurvegari) fær hærri
stig fyrir þá/þær keppnir sem sleppt er. Ef
keppendur eru þá enn jafnir telst sá ofar sem lenti í hærra sæti í
þeirra síðustu innbyrðis keppni.
3
ÍSLANDSMÓT
Keppt
er til Íslandsmeistara í Meistaraflokkum en unglingameistara í
unglingaflokkum.
Í
götuhjólreiðum er keppt í hópstarti og tímakeppni. Í
fjallahjólreiðum er keppt í víðavangi.
Í götuhjólreiðum skulu
keppendur í mismunandi flokkum ræstir í aðskildum hópum og þeim er ekki
heimilt að nýta sér skjól frá keppendum í öðrum flokkum, nema 16–18 ára,
meistara- og öldungaflokkur sem einnig keppa innbyrðis.
4
KEPPNISREGLUR, GÖTU- OG FJALLAHJÓLREIÐAR
4.1
ALMENNAR REGLUR
Eftirfarandi reglur
gilda bæði fyrir götu- og fjallahjólreiðar:
1.
HJÁLMASKYLDA
ER Í ÖLLUM KEPPNUM SEM HALDNAR ERU AF FÉLÖGUM SEM AÐILD EIGA AÐ
HJÓLREIÐANEFND ÍSÍ - HJÓL.
2.
Þátttaka í keppnum Hjólreiðanefndar og þeirra félaga sem aðild
eiga að henni, er á ábyrgð keppenda.
3.
Keppendum er óheimilt að þiggja utanaðkomandi aðstoð í keppni.
Undantekningar eru: drykkir, matur, fatnaður, slöngur, dekk og verkfæri.
Einnig má skipta um reiðhjól og gjarðir í keppni á götuhjólum.
4.
Bannað er að nýta sér skjól af utanaðkomandi farartækjum í keppni
að viðurlagðri brottvísun úr keppni.
5.
Bannað er að stytta sér leið. Yfirgefi keppandi keppnisleiðina
verður hann að koma inn á hana á sama stað og hann yfirgaf hana.
6.
Keppandi má ekki með hegðun sinni stofna öðrum keppendum eða
vegfarendum í hættu. Keppendur skulu ávallt sýna af sér íþróttamannslega
hegðun.
7.
Reiðhjólið skal
vera búið góðum bremsum framan og aftan og öll öryggisatriði í lagi.
Stýrisendar verða að vera lokaðir.
8.
Keppandi mælist
kominn í mark þegar fremsti punktur framdekks snertir lóðlínu yfir
fremri brún marklínu.
Brot þessum ákvæðum geta varðað
brottvísun úr keppni.
4.2 GÖTUHJÓLREIÐAR
4.2.1
REIÐHJÓLIÐ
1.
Reglur Alþjóða Hjólreiðasambandsins UCI gilda um gerð
reiðhjólsins. Þó skal leyft að nota hjól í keppnum sem samræmast
einungis eldri reglum UCI. Enda hafi þau verið keypt áður en UCI breytti
reglunum þannig að þau urðu ólögleg.
Keppnisstjóri má leyfa keppenda
að keppa á fjallahjóli og nota yfirbreiðslu á afturgjörð í tímakeppni.
2.
Reiðhjólið má ekki mælast lengra en 185 cm og ekki breiðara en 50
cm. Þvermál gjarða að meðtöldum dekkjum skal vera minnst 55 cm og mest
70 cm.
3.
Ekki mega vera á
hjólinu (auka)hlutir sem ætlað er sérstaklega að minnka loftmótstöðuna,
t.d. vindhlífar eða aukastýri. Þó er leyfilegt
í tímakeppni að nota aukastýri ,t.d. “þríþrautarstýri”. Keppnisstjóri
getur heimilað notkun á yfirbreiðslu á afturhjóli, sbr. grein 4.2.1.1.
4.
Diskhjól að framan eru bönnuð í öllum keppnum. Í hópstarti er
bannað að nota diskhjól að aftan.
5.
Í hópstarti er einungis leyfilegt að
nota hefðbundið götuhjólastýri, þ.e. niðurbeygt. Keppnisstjóri getur
heimilað að keppa á fjallahjóli, sbr. grein 4.2.1.1.
6.
Í tímakeppni
má lóðlína frá fremsta hluta aukastýrisins ekki ná meira en 75 cm fram
fyrir lóðlínu gegnum sveifarlegu. Keppnisstjóri skal leyfa að þessi
fjarlægð sé 80 cm vegna líkamsvaxtar, í samræmi við reglur UCI.
Skiptihandföng á enda stýris mega þó ná framar (en mega þá ekki notast
til handstuðnings)
7.
Lóðrétt lína, sem snertir fremsta hluta hnakksins má ekki vera
framar en 5 cm fyrir aftan lóðlínu gegnum sveifaöxul. Keppnisstjóri skal
leyfa að þessi fjarlægð sé 0 cm vegna líkamsvaxtar, í samræmi við reglur
UCI.
8.
Glerílát eru bönnuð.
4.2.2
KLÆÐNAÐUR KEPPENDA
1.
Bannað er að klæðast ónauðsynlegum fatnaði, vindhlífum o.þ.h. ,
eða öðrum útbúnaði sem hefur þann tilgang að minnka loftmótstöðu. Nota
má sérstaklega formaðan hjálm í tímakeppni.
2.
Keppendur skulu klæðast fatnaði sem veitir a.m.k. lágmarks vörn
ef óhapp verður.
4.2.3
KEPPNIN
1.
Keppandi sem veldur truflun á keppni með því að hindra eða stofna
í hættu öðrum keppanda (t.d. í endaspretti) skal dæmast úr leik.
2.
Á síðustu 100 m í endaspretti skal keppandi undantekningalaust
halda beinni línu og hafa a.m.k. aðra hönd á stýri. Við brot á þessari
reglu skal dæma keppandann í síðasta sæti í þeim hópi sem hann var í.
Hafi hegðunin ekki haft nein áhrif á úrslit sprettsins er dómara heimilt
að láta áminningu nægja.
3.
Í tímakeppni gildir “ 25m-reglan”: Bannað er að nýta
sér skjól frá öðrum keppendum. Nái keppandi öðrum keppenda skulu
þeir hafa a.m.k. 1,5 m hliðarfjarlægð á milli sín meðan farið er fram úr.
Ekki síðar en eftir 1000m skal sá sem farið er fram úr hafa látið sig
dragast 25 m aftur úr. 25 m-reglan gildir ekki síðustu 1000m að
endamarki.Við brot á reglunni má dómari keppninnar vísa brotlegum
keppanda úr keppni.
4.
Í tímakeppnum skulu keppendur ræstir af stað með 1 mínútu
millibili. Rásröð skal ákveðin þannig að þeir sem lentu í fjórum efstu
sætunum í viðkomandi keppni þegar hún var síðast haldin, og eru mættir
til leiks, skulu ræstir síðastir (sigurvegarinn
síðastur). Í vafatilvikum skal fara eftir úrslitum síðasta Íslandsmóts í
tímakeppni. Rásröð annarra keppenda skal ákveðin með hlutkesti. Í
ræsingu má halda keppendum og skulu allir keppendur þá fá slíka aðstoð.
Ekki má ýta keppendum af stað.
4.3
FJALLAHJÓLREIÐAR
4.3.1
HJÓLIÐ
1.
Gjarðir skulu vera 26 tommu, framan og aftan.
2.
Nagladekk eru leyfð ef aðstæður krefjast. Skrúfur o.þ.h. í
dekkjum eru bannaðar.
3.
Reiðhjólið skal vera búið góðum bremsum framan og aftan og öll
öryggisatriði í lagi.
4.3.2
KLÆÐNAÐUR KEPPENDA
1.
Bannað er að klæðast ónauðsynlegum fatnaði, vindhlífum o.þ.h. ,
eða öðrum útbúnaði sem hefur þann tilgang að minnka loftmótstöðu.
2.
Keppendur skulu klæðast fatnaði sem veitir a.m.k. lágmarks vörn
ef óhapp verður.
4.3.3
KEPPNIN
1.
Keppandi sem veldur truflun á keppni með því að hindra eða stofna
í hættu öðrum keppanda (t.d. í endaspretti) skal dæmast úr leik. Að
hegðunin hafi verið óviljandi eða vegna lélegs eða bilaðs búnaðar er
ekki gild afsökun.
2.
Á síðustu 100 m í endaspretti skal keppandi undantekningalaust
halda beinni línu og hafa a.m.k. aðra hönd á stýri. Við brot á þessari
reglu skal dæma keppandann í síðasta sæti í þeim hópi sem hann var í.
Hafi hegðunin ekki haft nein áhrif á úrslit sprettsins er dómara heimilt
að láta áminningu nægja.
3.
Hægfara keppendum er skylt að víkja
fyrir þeim hraðari án tafar.
5
LYFJAEFTIRLIT
1. Reglur um lyfjanotkun og eftirlit eru
samkvæmt reglum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Alþjóða
Hjólreiðasambandsins UCI.
Lög
Hjólreiðafélags Reykjavíkur
-
grein
Heiti
Félagið heitir
,,Hjólreiðafélag Reykjavíkur”, skammstafað HFR.
-
grein
Markmið
Tilgangur
félagsins er að iðka og efla hjólreiðar sem keppnisíþrótt og glæða áhuga
almennings á gildi þeirra.
-
grein
Félagar
Hver sá sem
greiðir félagsgjald til félagsins er félagi í Hjólreiðafélagi
Reykjavíkur, auk þeirra sem stjórn Hjólreiðafélags Reykjavíkur samþykkir
að skuli skrá sem félaga en er undanþeginn greiðslu félagsgjalds af
sérstökum ástæðum. Félagar fara með eitt atkvæði á aðalfundi og öðrum
fundum félagsins. Einstaklingar yngri en 16 ára hafa ekki atkvæðisrétt.
-
grein
Skipulag félagsins
Aðalfundur
félagsins hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Stjórn félagsins er
æðsti aðili í málefnum þess á milli aðalfunda og mótar starfssemina í
aðalatriðum. Félagsfundi skal boða svo oft sem stjórn ákveður og ef
skrifleg ósk kemur fram frá eigi færri en 10 félagsmönnum og tilgreini
þeir fundarefni hans. Halda skal félagsfund eigi síðar en þremur vikum
eftir að krafan um hann barst stjórninni og skal boða félagsfundinn með
viku fyrirvara.
5.
grein
Aðalfundur félagsins
Aðalfundur félagsins skal haldinn eigi síðar en í mars
ár hvert. Til aðalfundar skal boðað með tveggja vikna fyrirvara og skal
hann boðaður öllum félagsmönnum skriflega, á póstlista félagsins og á
heimasíðu. Aðalfundur félagsins er löglegur sé löglega til hans boðað,
án tillits til hversu margir mæta á fundinn.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
a)
Kosinn fundarstjóri og fundarritari
b)
Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári.
c)
Lagðir fram endurskoðaðir reikningar.
d)
Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun næsta árs.
e)
Lagabreytingar, ef tillögur liggja fyrir sbr. 12. grein
f)
Kosning í stjórn félagsins;
a.
kosinn formaður,
b.
kosnir 4 einstaklingar í stjórn,
c.
kosnir 2 varamenn og atkvæði greidd um þá,
d.
kosnir 2 endurskoðendur,
e.
kosnir formenn nefnda,
i.
Mótanefnd fjallahjólreiða,
ii.
Mótanefnd göthjólreiða,
iii.
Mótanefnd fjallabrun,
iv.
Fjáröflunarnefnd,
v.
Almenningshjólreiðar,
vi.
Bláa Lóns áskorunin.
g)
Skýrslur og tillögur fráfarandi nefnda
h)
Önnur mál.
Á aðalfundi ræður
meirihluti atkvæða úrslitum allra mála, sbr. þó 12. grein. Kosning skal
vera skrifleg nema aðeins komi fram ein uppástunga til stjórnarstarfa,
þá telst sá sem tilnefndur er, sjálfkjörinn. Formaður nefndar velur með
sér 2-4 einstaklinga í nefndina. Stjórnarmenn eru hlutgengir í nefndir.
Stjórn gegnir hlutverki nefnda ef ekki fæst fólk til að gegna störfum
þeirra.
6. grein
Reikningsár og reikningsskil
Reikningsár
félagsins skal vera almanaksárið. Allir reikningar skulu vera komnir
til endurskoðenda félagsins eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.
7. grein
Félagaskrá
Stjórnin skal halda félagaskrá
og endurkoða hana á hverju starfsári.
8. grein
Afsögn stjórnar
Komi til þess að
stjórn segir af sér störfum skal boða til félagsfundar og nýir fulltrúar
kosnir til sama tíma og fráfarandi fulltrúar voru áður kosnir.
11. grein
Félagsslit
Félaginu verður
ekki slitið nema á aðalfundi með samþykki að minnsta kosti 2/3 hluta
fundarmanna og því aðeins að getið hafi verið um væntanlega
atkvæðagreiðslu um framtíð félagsins í skriflegu fundarboði. Aðalfundur
ráðstafar eigum félagsins verði það lagt niður.
12. grein
Lagabreytingar
Lögum þessum má
ekki breyta nema á aðalfundi félagsins, og þarf til þess samþykki 2/3
hluta atkvæðisbærra fundarmanna.Tillögur til lagabreytingar skulu
tilkynntar með aðalfundarboði og skulu þær birtar á heimasíðu félagsins
eigi síðar en viku fyrir aðalfund.
13.grein
Gildistaka
Lög þessi öðlast
þegar gildi. Jafnframt eru felld úr gildi eldri lög félagsins.
samþykkt á
aðalfundi félagsins dags. 5. mars 2005
Keppnisreglur í fjallabruni
Reglur
þessar, ásamt reglum Alþjóða Hjólreiðasambandsins UCI, gilda í
hjólreiðakeppnum í fjallabruni á Íslandi. Varðandi þau atriði sem
reglurnar fjalla ekki um skulu reglur UCI gilda.
- Flokkar.
Keppt er í tveimur flokkum, 16 ára og yngri og 17 ára og eldri.
Keppendur yngri en 18 ára skulu skila inn skriflegu leyfi foreldra /
forráðamanna fyrir þátttöku þar sem fram kemur nafn og kennitala
keppandans og foreldra / forráðamanna auk síma foreldra /
forráðamanna
-
Keppnisbrautin
Brautin skal vera styðst 1000 metrar og lengst 3500 metrar. Brautin
skal vera öll niður í móti, leitast skal við að hafa brautina
fjölbreytta, ss. einstigi, vegslóða og grýtta kafla, auk þess að
vera sambland af hröðum og tæknilegum köflum. Brautin skal reyna á
tæknilega hæfileika hjólreiðamannsins. Rásmark skal vera 2 metra
breitt og endamark 6 metra breitt (keppnisstjóri hefur leyfi til að
minnka breidd endamarks í 4 metra við ef ekki næst 6 metra breidd).
Hemlunarsvæði eftir endamarkið skal vera 25 metrar og afgirt.
-
Keppnin.
Farnar eru 2 ferðir og gildir hraðari ferðin til sigurs. Rásröð
keppenda ræðst af úrslitum síðustu keppni í fyrri ferðinni þannig að
keppandi með besta tímann ræsir síðastur og keppandi með slakasta
tímann fyrstur. (keppnisstjóri raðar þeim keppendum sem ekki tóku
þátt í síðustu keppni). Í seinni ferðinni raðast keppendur eftir
úrslitum í fyrri ferðinni þannig að keppandi sem nær besta tímanum
ræsir síðastur, sá sem nær slakasta tímanum ræsir fyrstur. Keppanda
nægir að ljúka annari ferðinni. Ekki er leyfilegt að láta
samanlagðan tíma úr tveimur ferðunum gilda til sigurs.
-
Brautarmerkingar.
Brautin skal vera merkt
skýrt og greinilega með skærlitum borðum. Hættulegir kaflar skulu
sérstaklega merktir með skiltum. Verja skal hindranir, svo sem tré,
veggi eða annað sem hætta er á að keppandinn hjóli á, með heyböggum,
dýnum eða öðru mjúku efni til varnar keppendum. Merkja skal steina,
trjádrumba eða aðrar hindranir inni á brautinni með skærlitaðri
málningu.
-
Öryggisbúnaður.
Keppendur skulu allir klæðast eftirfarandi öryggisbúnaði:
-
Lokuðum hjálmi
-
Bak, hné, olnboga og
axlahlífum með hörðu yfirborði (brynju).
-
Legghlífum
-
Hnésíðum buxum
-
Síðerma treyju
-
Heilum hönskum (kevlar)
Mælst er til þess að
keppendur klæðist mjaðmahlífum, hlífðargleraugum, ökklahlífum,
úlnliðshlífum og punghlífum.
-
Reiðhjólið.
Reiðhjólið, og þá sérstaklega öryggisbúnaður reiðhjólsins, skal vera
í fullkomnu ásigkomulagi. Mælst er til þess að keppendur séu á
fulldempuðum hjólum með diskabremsum (8 tommu)
-
Brautarverðir.
Brautarverðir skulu
staðsettir á þeim kafla brautarinnar sem hvorki eru sýnilegir
starfsmönnum við rásmark eða endamark. Brautarverðir flagga þegar
keppandi stöðvast í brautinni öðrum keppendum til viðvörunnar.
Brautarverðir sjá til þess að keppandi sem stöðvast í brautinni komi
sér út fyrir brautina eins fljótt og auðið er.
-
Öryggismál.
Keppnisstjóri skal sjá til þess að hjálparsveit sé á keppnisstað á
meðan keppni stendur yfir.
-
Æfingaskylda.
Keppendur verða að fara 2 æfingaferðir í keppnisbrautinni og skulu
keppendur framvísa sönnun þess við skoðun öryggisbúnaðar fyrir
keppni (svo sem merki á hjóli eða stimpli á handarbak keppanda).
Brautin á að vera opin til æfinga 3 tímum fyrir keppni, auk þess sem
reynt verður að hafa brautina opna á æfingu vikuna fyrir keppni.
Æfingar eru ekki leyfðar á meðan keppnin stendur yfir.
-
Flutningur.
Keppnishaldari skal útvega flutning fyrir keppendur og hjól þeirra
að rásmarki. Keppendur eiga að vera komnir að rásmarki 15 mínútum
fyrir upphaf keppni.
-
Skráning.
Skráning keppenda lýkur 1 tíma fyrir keppni.
-
Skoðun öryggisbúnaðar.
Skoðun öryggisbúnaðar fer fram klukkustund fyrir keppni. Keppendur
sem ekki uppfylla allar öryggiskröfur er vísað frá keppni.
-
Keppendur eru á eigin ábyrgð í keppnum Hjólreiðanefndar ÍSÍ.
-
Keppnisstjóri ber ábyrð á að reglum þessum sé framfylgt.
|