HFR  Æfingar & mót  Korkur  Sölutorg  Blue Lagoon challenge
Fréttir | Um félagið | Stjórnin | Reglur | Skráning í HFR | Úrslit

 :: Hjólaleiga

Um er að ræða fjögur Scott hjól með Shimano 105 búnaði, stærðir 52-54-56-58 þannig að allir ættu að finna hjól við sitt hæfi.

Hjólaleiga HFR er starfrækt frá 1. maí til 1. september.

 
 

Yfirlit yfir hjól í leigu. á hjólunum



 

VINSAMLEGAST LESIÐ EFTIRFARANDI ÁÐUR EN FYRIRSPURNIR ERU SENDAR Á hjolaleiga@gmail.com
 
HFR hefur til leigu fjögur 'racer'-götuhjól. Um er að ræða 4 Scott 'racer'-götuhjól sem eru ætluð einungis í malbikshjólreiðar og er hugmyndin með þessari leigu að kynna fólk fyrir götuhjólaíþróttinni sem og fyrir fólk að prufa þessa tegund hjóla í styttri tíma. Hjólin eru af gerðinni Scott Speedster S30, álhjól með 10 gíra 'shimano 105' gíragrúppu og eru til í fjórum mismunandi stærðum fyrir konur og karla, 52,54,56 og 58 cm stellstærð. Til viðmiðunar eru þessar stærðir á hjólum fyrir viðeigandi hæð á fólki með undantekningum(algengara er að kvennfólk taki minni stærð en stærri):
52cm: 155-170cm
54cm: 165-180cm
56cm: 175-188cm
58cm: 180-195cm

Vikuleiga hefur forgang

Leigunni er þannig háttað að hjólin eru leigð út í viku, þ.e. frá mánudegi milli kl. 19 - 20 til næsta mánudags milli 18- 19.

Hjólin fást afhent í Fjallalind 97 framvísun kvittunar fyrir greiðslu á leigunni og persónuskilríkja.
Til þess að fá leigt hjól er send fyrirspurn á hjolaleiga@gmail.com þar sem gefið er upp það tímabil sem óskað er eftir leigu ásamt stærð á hjóli með upplýsingum um leigjanda, nafn og símanúmer. Svar mun svo berast tilbaka með staðfestingu á því hvort tiltekið hjól sé laust til leigu og ef svo er þá er viðkomandi skráður með leiguhjól á það tímabil á dagatalið hér að ofan.

Leiguverð er 5000 krónur á dag
Vikan er á 15000 krónur frá 20.00 á mánudegi til 19.00 á mánudegi.


 Reikningur HFR
Kennitala: Hjólreiðafélags Reykjavíkur: 430194-2089
Reikningsnúmer: 130-26-412089 (Landsbankinn Hamraborg)


Vinsamlegast athugið að dagatalið gefur ekki hárrétta mynd af útleigunni og getur breyst og bókanir verið komnar inn þegar send er inn fyrirspurn um leigu og því ekki öruggt að hægt sé að festa sér hjól þó það sé ekki skráð á dagatalið.
ATH!
Ætlast er til að skilmálar og reglur hér að neðan séu lesnir og þeim fylgt!


 



 

Leiguskilmálar

1.      Ofangreint reiðhjól hefur leigusali afhent leigutaka í fullkomnu lagi, sem leigutaki hefur kynnt sér. Leigutaki hefur einnig kynnt sér notkun og meðferð reiðhjólsins.

2.      Leigutaki er ábyrgur fyrir tjóni sem kann að verða á reiðhjóli og fylgihlutum þess vegna ógætilegrar og/eða rangrar notkunar.

3.      Leigutaki er óheimilt er að skipta um pedala.

4.      Leigutaki ber fulla ábyrgð ef reiðhjólið tapast eða því stolið úr vörslu hans. Ber leigutaka að greiða að fullu andvirði tækisins, auk leigu til þess tíma að uppgjör hefur farið fram.

5.      Leigusali er á engan hátt ábyrgur vegna slysa eða skemmda er kynnu að orsakast af notkun reiðhjólsins.

6.      Leigutaki er óheimilt að lána eða framleigja reiðhjólið.

7.      Undirritaður greiðslukorthafi heimilar hér með að ofanskráð greiðslukort verði skuldfært ef reiðhjóli er ekki skilað á tilsettum tíma og ennfremur fyrir skemmdum og vanskilum á reiðhjólinu.

8.      Leigutaki hefur kynnt sér leiguskilmálana og samþykkir þá með undirskrift sinni.

 

 VINSAMLEGA SKILIÐ REIÐHJÓLUNUM HREINUM, AÐ ÖÐRUM KOSTI GREIÐIST ÞRIFGJALD.

 
 

 

 


© hfr 2012 [ hafðu samband ]
 
 
 
Bikecompany Reykjavik Iceland. Bike tours and rentals
 
Útilíf hjólum í vinnuna