Helgina 27. - 29. ágúst fóru nokkrir HFR félagar í hjólaferð á hálendinu.
Ferðin heppnaðist eins og best var á kosið og voru menn sammála um að halda aftur á þessar slóðir við fyrsta tækifæri. Í hópnum voru Albert, Axel, Davíð, Hinrik, Jens og Steinn.
Föstudagur: Við lögðum af stað úr bænum á þremur jeppum seinnipart dags og komum í Hólaskjól upp úr kl. 9 um kvöldið.
Laugardagur: Áætlunin gerði ráð fyrir að keyra á tveimur bílum að Sveinstindi, skilja bílana þar eftir, hjóla niður í Hólaskjól og sækja síðan bílana um kvöldið.
Dagurinn var tekinn snemma og eftir að menn höfðu fengið sér staðgóðan morgunverð var haldið af stað áleiðis að Sveinstindi. Ferðin tók rúma klukkustund og nam hækkunin um 400m. Þessi hækkun ásamt góðum meðvindi gáfu fyrirheit um mikið fjör í vændum.
Eftir örlitla byrjunarörðuleika komum við að skálanum undir Sveinstindi.
Þar var stoppað í augnablik og síðan haldið eftir skemmtilegum stíg að Hvanngili. Við teymdum hjólið niður gilið, óðum Helnaá og fórum svo rakleiðis upp úr gilinu aftur. Rétt áður en farið var í gilið norðan Uxatinda hjóluðum við fram á hóp göngufólks frá Vestfjörðum. Þar var fremst í flokki, Urður Skúladóttir sem sigraði í Vesturgötunni í júlí síðastliðnum.
Eftir stutt nestistopp var haldið inn gilið norðan Uxatinda. Fyrirfram var nokkur óvissa með hversu mikið væri hægt að hjóla á þessum kafla. Það kom síðan á daginn að nánast ekkert er hægt að hjóla. Við enduðum með að teyma og bera hjólin í gegnum allt gilið. Það tók vel á að klifra með fulldempaða fjallahjólahlunka upp gilið. Betra var að eiga við hardtail hjólin á þessum kafla.
Eftir gilið tók við talsvert labb með hjólin upp sandbrekku og þegar hér var komið sögu voru menn farnir að velta fyrir sér hvort við næðum eitthvað að setjast meira upp á hjólin. Þegar upp brekkuna var komið sáum við loks í vegslóða sem hægt var að hjóla eftir. Nú tók við stórskemmtilegt brun sem endaði við skálann í Skælingum.
Frá Skælingum var hjólað á kindastígum og vegslóðum alla leið í Hólaskjól.
Þessi kafli er stórskemmtilegur og alls ekki erfiður yfirferðar. Fara þarf yfir nokkrar sprænur á leiðinni og þegar hér var komið sögu nenntu menn ekki að vaða árnar heldur var hjólað yfir á fullu, með misjöfnum árangri.
Við komum í Hólaskjól eftir rétta tæpar sex klukkustundir og 33km. Jens og Davíð fengu far með hjálpsömu ferðafólki á jeppa að Sveinstindi til að sækja bílana. Þeir sem eftir tóku að sér að útbúa kvöldmatinn. Eftir ánægjulegan kvöldverð var lagst til svefns og safnað kröftum fyrir morgundaginn.
Sunnudagur: Álftavötn - Strútsstígur
Við keyrðum að vaðinu við Syðri-Ófæru þar sem við lögðum bílunum og hjóluðum síðan eftir Strútsstíg í átt að Strúttslaug í frábæru veðri.
Leiðin er stórskemmtileg hjólaleið og liggur eftir kindastígum, jeppaslóðum og árfarvegum og er hægt að hjóla næstum alla leiðina. Eftir tveggja klst. hjólerí var tekið nestisstopp. Þar sem menn voru tímabundnir var haldið til baka í stað þess að hjóla alla leið að Strútslaug.
Við komum til baka að bílunum eftir tæpar fjórar klukkustundir, 27km og 700m klifur.
Lokastaðan í götu- og fjallahjólastigakeppni sumarsins
28.ágúst 2010 | Hákon Hrafn Sigurðsson
Hafsteinn Ægir Geirsson og Eva Margrét Einarsdóttir urðu stigameistarar sumarsins í götuhjólreiðum og Emil Tumi Víglundsson í unglingaflokki. Sjá nánar hér - Götuhjól.
Hákon Hrafn Sigurðsson og María Ögn Guðmundsdóttir urðu stigameistarar sumarsins í fjallahjólreiðum og Emil Tumi Víglundsson í unglingaflokki. Sjá nánar hér - Fjallahjól.
Úrslit úr downhill stigakeppninni koma á morgun.
Íslandsmeistaramót í fjallabruni 28. ágúst í Hlíðarfjalli Akureyri
26.ágúst 2010 | Albert Jakobsson
Laugardaginn 28. ágúst fer fram Íslandsmeistaramót í fjallabruni í Hlíðarfjalli Akureyri. Æfingar byrja kl. 10 og keppni kefst kl. 14:00