Hjólamenn héldu hjólreiðakeppnina Jökulmílan um helgina. Um er að ræða 100 mílna (161km) keppni, jafnframt sem boðið er upp á styttri leið (50 mílur) og útsýnisflokk.
Keppnin fór tiltölulega rólega af stað, en í fyrsta alvöru klifri dagsins eftir um 10 km tóku Ármann og Árni Már af skarið og skiptist hópurinn upp í nokkra smærri hópa. Þeir Atli, Ármann, Árni, Jens, Míró, Steinar, Viðar leiddu þá keppnina, með Elvar og Hilmir fast á eftir. Þegar komið var á vestasta hluta Snæfellsness taldi fremsti hópur 6 manns, og nokkuð bil hafði skapast í næstu keppendur. Fremsti hópur hélt uppi góðum hraða, og allir tóku vel á því fremst til að halda hraðanum uppi, enginn ástæða var því til árása enda langt eftir. Dró til tíðinda þegar hópurinn hjólaði inn á vatnaleið í nokkuð stífan mótvind. Voru þá eftir 4 HFR menn, Ármann, Árni, Jens, Míró auk Viðars frá Hjólamönnum. Ljóst var að Viðar var í erfiðri stöðu gegn fjórum HFR ingum, sem hófu harðar árásir í seinna klifrinu á vatnaleið. Viðar átti flottan dag, en varð að láta undan þegar um 10 km voru eftir. Niðurstaðan, Míró 1, Árni 2, Ármann og Jens í 3 og 4, og Viðar fylgdi svo skömmu á eftir.
Í kvennaflokki var Ása fyrst eftir fyrsta klifur, hún hjólaði með nokkrum körlum að Rifi, en þá náði Ásdís að draga hópinn uppi. Aftur skildu leiðir í klifrinu við Búðir, þegar Ásdís missti af hópnum og þannig hélst staðan allt til enda. Ása hjólaði með tveimur til þremur körlum, en Ásdís þurfti að hjóla ein það sem eftir var. Niðurstaðan Ása 1, Ásdís 2, og Jóhanna í 3. Í fjórða sæti var svo Kolbrún.
Í styttri keppninni vann Elsa kvennaflokkinn og Margeir vann karlaflokkinn með nokkrum yfirburðum.
Keppnin var virkilega skemmtileg, og hjólamenn eiga hrós skilið fyrir að standa gríðarlega vel að þessari keppni. Allt sem tengdist mótshaldi var til fyrirmyndar, vandasamt er að halda svo stóra og fjölbreytta keppni. Veðrið lék við þátttakendur, sól mestan hluta leiðarinnar og lítill vindur. Að keppni lokinni var boðið upp á gómsætar veitingar, flott verðlaun og góða stemningu. Við HFR-ingar þökkum kærlega fyrir okkur.
Jökulmílan 2013
12.júní 2013 | Albert Jakobsson
Jökulmílan, lengsti hjólreiðaviðburður fyrir einstaklinga á Íslandi, verður haldin á Snæfellsnesi laugardaginn 15. júní. Nú þegar hafa rúmlega 60 aðilar skráð sig til leiks. Grundarfjörður er miðpunktur ævintýrisins en þar verður bæði rás og endamark. Hjólað verður til vesturs um seiðandi og fjölbreytt landslag í nágrenni Snæfellsjökuls, að Vegamótum, yfir Vatnaleið og til Grundarfjarðar. Alls eru það 161 km eða 100 mílur. Hver og einn fer „Míluna" á sínum hraða og hægt verður að fara af stað klukkan 9 og 11. Góðar orkuríkar veitingar eru á þremur drykkjastöðvum á leiðinni.
Einnig stendur til boða að hjóla hálfa „Mílu" og verða þátttakendur ræstir kl. 13 frá Búðum.
Á meðan fullorðnafólkið hjólar, stendur börnum frá 8 ára aldri til boða að taka þátt í hjólaþraut og pylsupartýi á Grundarfirði.
Búist má við fólki í mark upp úr kl. 14:30. Þá verður þátttakendum boðið í kjötsúpu og sund. Það verður því mikil hjólaveisla í boði á Snæfellsnesinu um helgina.
Hjólreiðafélgið Hjólamenn hafa veg og vanda að þessum viðburði og er hann haldinn í samvinnu við Grundarfjarðarbæ og ferðamálayfirvöld á Vesturlandi. Styrktaaðilar keppninnar eru Hreysti, Tri, Innes, Garminbúðin og hjólreiðaverslanir á höfuborgarsvæðinu.
Hjólamenn þakka samstarfsaðilum kærlega fyrir góða samvinnu og biðja ökumenn að sýna hjólreiðamönnum tillitsemi í umferðinni.
Allar nánari upplýsingar er á jokulmilan.is og hjolamenn.is
Frestur til að skrá sig í Jökulmíluna rennur út fimmtudaginn 13. júní, kl. 18:00. Skráningin fer fram á nýjum vef Hjólanefndar ÍSÍ, Hjólamót.is..
Sjáumst á Snæfellsnesinu um helgina.
Fyrir þá sem ekki geta tekið þátt í ár þá gefst góður tími til undirbúnings því það verður önnur Jökulmíla að ári.
Laugardaginn 8.júní hélt HFR Bláalónsþrautina, Blue Lagoon Challenge.
11.júní 2013 | Albert Jakobsson
Veðrið var nokkuð gott í byrjun dags en þó var ljóst að einhver bleyta yrði á leiðinni og jafnvel rigning meðan á keppni stóð. Strax við byrjun skráningar stefndi í góða mætingu og enn eitt árið var slegið þátttökumet, en 536 keppendur voru skráðir og þar með lang stærsta hjólamót sem haldið hefur verið á Íslandi. Nokkrir erlendir þátttakendur voru skráðir til leiks, m.a. Martin Haugo frá Noregi. Keppendur hjóluðu í lögreglufylgd frá Ásvallalaug að rásmarki við Hvaleyrarvatnsveg þar sem tímataka hófst. Nokkuð rösklega var farið af stað og teygðist á hópnum sem hjólaði ýmist í stórum eða litlum hópum upp Krísuvíkurmalbik áleiðis inná Djúpavatnsleið. Eftir að malbikinu sleppti teygðist enn frekar á hópnum og brátt myndaðist 5 manna hópur fremst, Martin Haugo, Hafsteinn, Kári, Davíð og Ingvar með skarann af keppendum í humátt; Helga, Óskar, Steinar, Benedikt, Hákon, Ármann, Sigurð, Miro, Valgarð, Sigga Skarpa og þess má geta að María Ögn var í þeirra hóp mjög framarlega. Brautin var vægast sagt drullug, bæði vegna polla og mjúks jarðvegs í veginum og keppendur fengu því sinn skerf af steinefnum þennan dag. Við drykkjarstöð höfðu Hafsteinn og Martin skilið sig frá og hóparnir skipst frekar upp og nokkuð var um að menn sprengdu, m.a. Kári, Hákon, Davíð og Benedikt. Við Ísólfskálabrekku náði Martin forskoti á Hafstein en sameinuðust svo aftur saman við Grindavík og fram að endamarki þar sem Hafsteinn hafði betur í endasprett og sigraði á tímanum 1:46:09. Þriðji kom Ingvar í mark og stuttu síðar hópur í þeirri röð, Óskar, Helgi og Sigurður, þá Steinar og Benedikt einmana og Ármann, Davíð og Guðlaugur saman. María Ögn kom svo fyrst kvenna í mark á flottum tíma 2:00:38, besti tími kvenna hingað til og töluverð bæting frá fyrra ári. Önnur varð Karen sömuleiðis á góðum tíma 2:03:04. Þriðja varð svo Ásdís Kristjánsdóttir 2:18:46. Í firmakeppni sigraði Bike Company, Marel-Fjallshlíð í öðru og Össur racing í þriðja Í liðakeppni karla sigraði Einn dans fyrir mig, HFR-furstarnir í öðru og Bjartur í þriðja. Í liðakeppni kvenna sigraði Muddy Mary and her sisters, Hálfsysturnar í öðru og Femme Fatale í þriðja.
Vel tókst til við mótahald og þakkar HFR öllum keppendum fyrir þátttökuna og sjáumst að ári!
Sérstakar þakkir sendir HFR þeim sem komu að mótinu, Bláalóninu, styrktaraðilum, björgunarsveitum, Þríkó, sjálfboðaliðum og öllum þeim sem hjálpuðu til við að gera þessa frábæru keppni að veruleika.
Við þökkum ykkur kærlega fyrir góða og drengilega keppni í dag. Keppnin fór í öllum aðalatriðum vel fram, gekk frábærlega, og komust flestir leiðina stórslysalaust. Nú er unnið hörðum höndum að því að koma niður endanlegum úrslitum, en hægt er að skoða tíma frá tímatökukerfi á
Einnig viljum við þakka öllu starfsfólki og styrktaraðilum og öðrum þeim sem aðstoðuðu okkur við að gera þetta mót að veruleika, en rúmlega 530 keppendur voru skráðir til leiks.
Afhending verðlauna, fer fram á morgun í Reiðhjólaversluninni Erninum faxafeni kl. 20:00.