Kári
6.dagur smáþjóðaleika og keppnisdagur á fjallahjólum.
Loksins kom að því að Fjallahjólakapparnir fengu að keppa. Dagurinn byrjaði eins og flestir aðrir á morgunmat á hótelinu og ljóst var að nokkur rigning væri þennan dag í samræmi við veðurspár. Okkar menn létu það þó ekki trufla sig mikið enda ættu erfiðari skilyrði í brautinni ekki að hamla okkur. Menn fóru saman í hádegismat eins og áður en með mismikla lyst eins og vill vera. Þeir sem búnir voru að keppa átu a.m.k. Vel. Þegar á Keppnisstað var komið var ennþá nokkuð mikil rigning eins og hafði verið yfir daginn og því brautin nokkuð blaut. Kári, Helgi og Ingvar hituðu vel upp. Ýmist inni íslands-tjaldinu eða úti.
31 voru skráðir til leiks en þar af ljóst fyrir smáþjóðaleika að Davíð keppti ekki til að einbeita sér að götuhjólum og 3 menn dygðu í liðakeppnina. Lúx og kýpur voru með sterk lið ásamt 'bmc-gaurnum' frá lichtenstein en sömuleiðis voru markmið okkar manna há.
Mikill æsingur var í byrjun keppni og mjög hratt farið af stað og komst Helgi nokkuð framarlega í byrjun eða í ca.10-12 sæti. Ingvar þar stutt fyrir aftan og Kári einnig. Fyrsti hringur var mjög hraður og mikil drulla í brautinni svo menn komu vel drullugir framhjá á fyrsta hring. Lúx maður hafði tekið forystu sá sami og endaði í 3.sæti í TT á þriðjudag. Röð okkar manna hélst þessi um stund en eftir að Kári fór að finna taktinn náði hann að vinna sig ofar eftir ca. 2 hring og Helgi og Ingvar héldu nokkuð góðu tempói sömuleiðis. Nánast beint eftir ræsingu hætti að rigna en brautin hélst áfram sleip og full af drullu.
Brautin sjálf var í svipuðu umhverfi og á leikunum fyrir 2 árum en nokkuð frábrugðin Hvað varðar leiðarval. Nokkuð var um flata kafla og svo mjög stutta tæknilega kafla upp og niður öfugt við fyrir 2 árum þegar brautin var mjög tæknileg. Þetta hentaði því ágætlega lúx mönnum sem höfðu mikið afl en þurftu ekki of mikla tækni. Okkar menn reyndu að keyra þétt og gerðu vel. Útlendingarnir reyndust þó nokkuð sterkir í þessari braut. Kári náði með seiglu að hjóla sig uppi 16.sæti og hélt því til loka. Helgi stutt fyrir aftan landaði 19.sæti og Ingvar kláraði stuttu seinna í 22.sæti. Ágætur árangur okkar þó væntingarnar væru háar.
Menn komu a.m.k. Vel drullugir úr keppninni:)
lúxarinn tók svo sigurinn, 26 kláruðu en nákvæm úrslit koma seinna.
Kvennakeppninni var minna sinnt þar sem okkar konur kepptu ekki í þetta sinn.