Hjólreiðafélag
Reykjavíkur og Bláa Lónið hf. kynna:
Bláalónsþraut
á fjallahjóli
13.
júní 2010 kl: 10:00
Hafnarfjörður -
Bláa Lónið
Tvær vegalengdir
60 km og 40 km
Smella hér til að sjá
kortið
Afhending
rásnúmera og ræsing:
Íþróttahúsið við Strandgötu
(Hafnarfirði)
13. júní 2010 frá kl. 8:00 - 9:30.
Ræsing fyrir 60 km leið er kl. 10:00 frá Strandgötu.
Hópurinn hjólar saman undir lögreglufylgd suður að kirkjugarðinum þar sem
tímataka hefst. Ræsing fyrir 40 km er við Djúpavatnsafleggjara á sama tíma.
Keppendur sem ekki setja númer framan á hjólin sín þannig að þau sjáist í endamarki geta búist við því að fá ekki tíma eða sæti í keppninni.
Skráning
Netskráning:
Smella hér.
Keppnisgjald er 2500 kr. á mann í netskráningu.
Netskráning lýkur 11. júní. Eftir 11. júní verður einungis hægt að skrá sig á
keppnisdag. Skráningargjald á keppnisdag er 3500 kr. á mann.
Bláa Lónið hf. býður öllum keppendum í lónið eftir keppnina (kr. 4600). Einnig er létt máltíð eftir keppnina innifalin í
skráningagjaldi.
Flokkar
60
km karlar og konur: 16-18, 19-29, 30-39, 40-49, 50+
40 km karlar og konur: opinn flokkur.
Liðakeppni
Liðakeppnin er á 60 km leiðinni.
3-5 í liði, 3 bestu tímar gilda. Að a.m.k. 3 þurfa að klára keppni til að
liðið fái tíma skráða.
Öll lið eru leyfileg, allur aldur og bæði kyn, fjölskyldur, fyrirtæki
o.s.frv.
Firmakeppni
Liðakeppnin er á 60 km leiðinni.
3-5 í liði, 3 bestu tímar gilda. Að a.m.k. 3 þurfa að klára keppni til að
liðið fái tíma skráða.
Hugmyndin er að fyrirtæki taki sig saman og keppi sem eitt lið.
Verðlaun
Verðlaun fyrir 1.-3. sæti í hverjum flokki á 60 km leið. Veitt eru 1.-3.
verðlaun í opnum flokki karla og kvenna á 40 km leið.
Bláa Lónið kostar öll verðlaun.
Verðlaunaafhending
verður kl 15:00 við markið á bílastæði Bláa lónsins
Drykkjastöð
Tvær drykkjarstöðvar, önnur við gatnamót
Djúpavatns- og Ísólfskálavegar. Síðari er við endamark.
Súpa og léttmeti handa öllum keppendum í keppnistjaldi á bílastæði að
lokinni keppni.
Flutningar:
Töskur keppenda frá Strandgötu í Bláa lónið: Flutningabíll frá Vífilfelli mun flytja töskur keppenda frá Strandgötu í endamarkið við Bláa lónið
Hjólin: Vífilfell býður keppendum frían flutning á hjólum frá Bláa lóninu til baka í strandgötu. Flutningarbílar leggja af stað eftir verðlaunaafhendingu.
Keppendur: Áætlunarrúta á vegum Þingvallaleiða kl: 14:00, 16:00 og
18:00 á kostnað keppenda. Kynnisferðir fara einnig frá Bláa lóninu kl. 14:15 15:15, 16:15 og 17:15. Ath. Breytingar sem kunna
að verða á áætlun, eru ekki á ábyrgð mótshaldara.
Ýmislegt
Keppnin er opin öllum 15 ára og eldri.
Hjálmaskylda er og eru keppendur á eigin ábyrgð í
keppninni.
Vegurinn er opinn almennri umferð, keppendur eru beðnir að hjóla eftir
umferðareglum.
Drykkjarstöð við Ísólfskálaveg er opin til kl.
12:30. Tímataka við markið hættir
kl. 14:45.
Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík sér um brautargæslu og endamark.
Bláa Lónið hf. býður öllum keppendum í lónið eftir keppnina.
Vífilfell býður keppendum upp á orkudrykki og flutning á hjólum til baka.
Húsasmiðjan kostar brautargæslu og veitingar í endamarki.

|